Þakgil er opið 1.júní til 30.sept. Lengt í báða enda, eftir samkomulagi. Nú er hægt að vakta Kötlu með vefmyndavél sem RÚV hefur komið upp í samstarfi við Almannavarnir og Símann. Náttúruperlan Þakgil er staðsett á Höfðarekkuafrétti milli Mýrdalsjökuls og Mýrdalssands 14 km frá þjóðveginum. Eins og nafn gilsins bendir til er þar mikil veðursæld. Beygt er út af þjóðveginum við Höfðabrekku sem er 5 km austan við Vík. Ekið er sem leið liggur inn á heiðar, eftir vegi sem var þjóðvegur nr. 1 til 1955, þar til komið er að skilti sem bendir inn í Þakgil. Vegurinn inn í Þakgil er fær öllum bílum. Á þessu svæði eru margar fallegar gönguleiðir við allra hæfi. Tjaldsvæði, snyrting og sturta eru á staðnum. Matsalurinn er náttúrulegur hellir og í honum eru borð og bekkir og bæði kamína og grill. • Tjaldsvæðið er tilvaldið hvort sem er fyrir einstaklinga eða hópa. • Gisting kostar 2.400 krónur nóttin fyrir 12 ára og eldri. • 12-16 ára greiða fyrir 1 nótt þó að gist sé 2 nætur eða fleiri. 1 sturta innifalin fyrir hverja nótt. • Smáhýsið kostar 25.000 kr. nóttin. • Upplýsingar eru gefnar í síma 893-4889. • Einnig er hægt að senda tölvupóst á: helga@thakgil.is. • Fyrir frekari upplýsingar um svæðið er hægt að fara á Vík.is.