Upplýsingar •  Smáhýsin •  Draumurinn •  Sagan •  Myndir • 
 

Sæl verið þið.
Þá er komið sumar og Þakgil opnar föstudaginn 4. Júní 2010 og verður opið fram á haust. Helsta breytingin frá því í fyrra er að nú verður hægt að fá rafmagn í fellihýsin.
Allt er með svipuðu sniði og í fyrra nema að bætt hefur verið við útiborðum. Einnig er búið að bæta við lýsinguna í smáhýsunum ásamt kaffigræjum og fleiri smááhöldum.

Hlakka til að sjá ykkur sem flest.
Bestu kveðjur
Helga og Bjarni Jón

  Nú er hægt að vakta Kötlu með vefmyndavél sem RÚV hefur komið upp í samstarfi við Almannavarnir og Símann.

  Náttúruperlan Þakgil er staðsett á Höfðarekkuafrétti milli Mýrdalsjökuls og Mýrdalssands 14 km frá þjóðveginum. Eins og nafn gilsins bendir til er þar mikil veðursæld.
  Beygt er út af þjóðveginum við Höfðabrekku sem er 5 km austan við Vík. Ekið er sem leið liggur inn á heiðar, eftir vegi sem var þjóðvegur nr. 1 til 1955, þar til komið er að skilti sem bendir inn í Þakgil. Vegurinn inn í Þakgil er fær öllum bílum.
  Á þessu svæði eru margar fallegar gönguleiðir við allra hæfi. Tjaldsvæði, snyrting og sturta eru á staðnum. Matsalurinn er náttúrulegur hellir og í honum eru borð og bekkir og bæði kamína og grill.

  • Tjaldsvæðið er tilvaldið hvort sem er fyrir einstaklinga eða hópa. Gisting kostar 900 krónur nóttin fyrir 12 ára og eldri.
  • Smáhýsið kostar 14.000 kr. nóttinn.
  • Upplýsingar eru gefnar í síma 893-4889.
  • Einnig er hægt að senda tölvupóst á: helga@thakgil.is.
  • Fyrir frekari upplýsingar um svæðið er hægt að fara á Vík.is.
  • Þakgil er einungis ætlað fjölskyldufólki.


 
 
Þakgil • Sigtúni 6 • 870 Vík • Ísland  |  Sími: 893-4889 • Símbréf: 487-1555 • tölvupóstur:bjarnijon@thakgil.is